Tildra lokuð fullorðins
Tildra lokuð fullorðins
Tildra er prjónuð ofan frá og niður. Peysan er lokuð og er heilmunstruð. Mismunandi prjónfesta er á stærðum, það er til þess að stökkið á milli stærða sé ekki jafn stórt. Þannig eru stærðir XS, M, XL og XXXL með prjónfestu 17/10 á 5 mm prjóna og stærðir S, L, XXL og XXXXL með prjónfestu 16/10 á 5.5 mm prjóna, hérna þurfa samt sumir að nota fínni prjóna til þess að ná þéttri prjónfestu.
Stærðir: xsmall, (small), medium, (large), xlarge, (xxlarge), xxxl, (xxxxl).
Ummál: 94, (100), 106, (113), 118, (125), 130, (138) cm.
Prjónfesta: 17/10 cm á prjóna númer 5,5.
Prjónar: Sokkaprjónar 4.5 mm og 5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm, 5 mm og 5.5 mm. Langur hringprjónn (80 cm) 4.5 mm, 5 mm og 5.5 mm.
Garn: Kindknitting merino eða Dale Merino 22 og fylgiþráður Holst Titicaca eða Filcolana Alva.
Garnmagn: Merino og Merino 22: 350, (350), 400, (450), 500, (550), 550, (600)g.
Holst Titicaca og Filcolana Alva: 100, (150), 150, (150), 150, (200), 200, (200)g