Sumarblær opin barnapeysa
Sumarblær opin barnapeysa
Peysan Sumarblær er prjónuð ofan frá og niður. Peysan er prjónuð fram og til baka slétt á réttunni og brugðin á röngunni. Alveg niður að munstur bekknum sem er neðst á peysunni. Hægt er að velja um að hafa peysuna aðeins síðari að aftan eða jafna sídd á henni allri. Sniðið á peysunni á að vera laust en ekki í yfirstærð
Stærðir: 6 – 12 mánaða, (1 – 2 ára), 2 – 3 ára, (3 – 4 ára), 4 – 5 ára, (6 ára), 8 ára, (10 ára), 12 ára.
Ummál: 58, (62), 65, (69), 72, (76), 80, (84), 87 cm.
Prjónfesta: 22/10 cm á prjóna númer 4.
Prjónar: Sokkaprjónar 3.5 mm og 4 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 3.5 mm og 4 mm. Lengri hringprjónn (60 – 80 cm, fer eftir stærð) í bæði 3.5 mm og 4
mm.
Garn: Dale merino 22, Lang Merino 120 eða Dale Lerke
Garnmagn: 200, (250), 300, (300), 350, (350), 400, (450), 500 g.