Skip to product information
1 of 10

Örk sjal

Örk sjal

Regular price 750 ISK
Regular price Sale price 750 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Sjalið er prjónað fram og tilbaka. Útaukningar eru reglulega í sjalinu og þá er tekin heil umferð í það. Uppskriftin er þannig uppbyggð að prjónfestan er ekki mikilvæg, ef fínna garn er valið þá verður sjalið bara fíngerðara en ef grófara garn er valið þá verður það grófara, lagið heldur sér alltaf. Þannig getur maður valið hversu gróft/fínt það á að vera. 

Sjalið getur verið einlitt, eða marglitt, það getur verið fallegt að setja rendur í garðaprjónið, þá eru prjónaðar 2 umferðir í sama lit til að litaskiptin verði falleg. Svo er líka mjög fallegt að setja contrast lit í affellinguna. Stærðin á sjalinu er undir þeim komið sem prjónar það, mér fannst það koma vel út að setja affellinguna á eftir garðaprjónshlutanum, en það er líka fallegt að setja það á eftir stroff prjóninu, passið bara hlutföllin að allir kaflarnir séu jafn breiðir. 

Lykkjufjöldi í sjalinu skiptir akkúrat engu máli, það breytir engu um lögun á sjalinu, ef þið farið nokkurn veginn eftir skrifuðum leiðbeiningum þá ætti allt að vera í lagi 1 – 20 lykkjur til eða frá skipta engu máli þegar sjalið er orðið nokkuð stórt.

Stærðir: 1 Stærð
Prjónfesta: Fer bara eftir garninu sem þið ákveðið að nota

Prjónar: Prjónar sem henta garninu sem er valið, ef garnið er gefið upp fyrir 4 mm, þá myndi ég nota prjón sem er 0,5 – 1 mm breiðari og svo framvegis.

Garntillögur: Mohair Edition Recy + Garn í Gangi Alpaca Lace, Systrabönd DK garn, RA handlitun Scout, Vatnsnes yarn Dk garn,  Dottir Dyeworks DK deluxe eða Cascade Yarns MeriSeta.

Garnmagn: Mohair Edition Recy: 100 – 150 g. eftir því hversu stórt það á að vera                       Garn í Gangi Alpaca Lace: 100 g.

Ca 200 - 300g af öðru uppgefnu garni (fer eftir því hversu stórt það á að vera).

View full details