Skip to product information
1 of 2

Örk klútur/trefill

Örk klútur/trefill

Regular price 750 ISK
Regular price Sale price 750 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Klúturinn er prjónað frá enda út í enda. Útaukningar og úrtökur eru á réttunni. Uppskriftin er þannig uppbyggð að prjónfestan er ekki mikilvæg, ef fínna garn er valið þá verður klúturinn bara fíngerðara en ef grófara garn er valið þá verður hann grófari, lagið heldur sér alltaf. Þannig getur maður valið hversu grófur/fínn hann á að vera. Einnig getur maður líka stjórnað laginu á honum, miðju kaflann er hægt að lengja með því að hætta að auka út og þá kemur bara jafn breiður kafli.

Það er jafnvel hægt að gera hálsklút úr því, ef maður velur garn sem er fyrir ca 3 mm prjóna, eins og „fingering“ garn. Þá getur verið gott að lengja bilið á milli útaukninga.

Stærðir: 1 stærð
Prjónfesta: Fer bara eftir garninu sem þið ákveðið að nota

Prjónar: Prjónar sem henta garninu sem er valið, ef garnið er gefið upp fyrir 4 mm, þá myndi ég nota prjón sem er 0,5 – 1 mm breiðari.

Garntillögur: Cascade MeriSeta, Systrabönd handlitun DK garn, Edy Angola Alpaca Merino eða Pascuali Alpaca fino.

Garnmagn: Ca 150 - 250g (fer eftir því hversu stórt það á að vera)

View full details