Skip to product information
1 of 6

Lukka skokkur

Lukka skokkur

Regular price 1.200 ISK
Regular price Sale price 1.200 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Lukku skokkurinn er prjónaður í nokkrum hlutum, sem þýðir að byrjað er að prjóna mittisbandið, síðan eru teknar upp lykkjur fyrir bolnum, sem er fyrst prjónaður i hring og svo í tveimur hlutum. Axlirnar eru lykkjaðar saman og síðan eru teknar upp lykkjur fyrir pífurnar. Að lokum er svo pilsið prjónað. Í lokafrágangi er búin til lykkja til að loka skokknum að aftan, annað hvort saumuð eða hekluð. Ekki hræðast þessa upptalningu, því það eru engin flókin tækniatriði í uppskriftinni :)

Stærðir: 6 – 12 mánaða, (1 – 2 ára), 2 – 3 ára, (4 ára), 6 ára, (8 ára) 10 ára.
Yfirvídd: 48, (50), 56, (59), 64, (67), 72 cm.
Prjónfesta: 23/10 á 3.5 mm. prjóna.

Prjónar: hringprjónn (60 og 80 cm) 3, 3,5 og 4 mm.
Garntillögur: Holst Coast tvöfaldur þráður eða BC Bio Balance + Isager alpaca 1.
Garnmagn: Holst Coast: 150, (150), 200, (200), 250, (300), 350 g

                     Bc Bio Balance: 150, (200), 200, (200), 200, (250), 250 g

                     Isager Alpaca 1: 100, (100), 100, (150), 150, (150), 150 g

View full details