Litli Vindur
Litli Vindur
Regular price
750 ISK
Regular price
Sale price
750 ISK
Unit price
/
per
Litli Vindur er alveg eins húfa og Vindur, nema í barnastærðum. Sniðið á húfunni er hefðbundið húfusnið. Byrjað er að fitja upp á stroffinu á húfunni, það prjónað þar til réttri lengd er náð, það er prjónað saman, næst er húfunni snúið við og hún prjónuð slétt að úrtökunni, þannig verður þrefalt lag yfir eyrunum. Góð teygja er í húfunni og gott að hafa það í huga þegar stærð er valin.
Stærðir: 1 - 3 ára, (3 - 6 ára). 6 - 10 ára.
Ummál:passar höfuðmáli ca 47 - 50, (51 - 53), 53 +.
Prjónfesta: 23/10 cm á 3,5 mm prjóna.
Prjónar: Sokkaprjónar 3,5 mm og lítill hringprjónn 3.5 mm
Garn: Dale Merino 22, Lang Merino 120 eða Dottir Dyeworks DK garn.
Garnmagn: 100 g í allar stærðir.