Létt Tildra
Létt Tildra
Létt Tildran er léttari útgáfa af vinsælu peysunni Tilrdru. Munstrið er bara á berustykkinu en annars prjónuð alveg slétt. Uppskriftin miðast við stutterma bol, en einnig er hægt að velja að hafa langar ermar.
Stærðir: Xsmall, (Small), Medium, (Large), XLarge, (2XLarge), 3XLarge, (4XLarge).
Yfirvídd: 98, (103), 111, (117), 122, (129), 136, (143) cm.
Prjónfesta: 18/10 á 5 mm. prjóna í sléttu prjóni
Prjónar: Sokkaprjónar/stuttur hringprjónn 3.5 mm, 4 mm, 4.5 mm og 5 mm, langur hringprjónn 5 mm og 4.5 mm.
Garntillögur: Holst Coast (tvöfalt) eða Dottir Dyeworks fingering + Holst Titicaca eða BC garn Bio Balance + Isager alpaca 1, uppgefið garn er fyrir stutterma útgáfuna.
Garnmagn: Holst Coast: 150, (200), 200, 250, (250), 250, (300), 300 g
Bio balance: 150, (200), 200, (200), 250, (250), 250, (300) g
Fingering: 200, (200), 200, (200), 300, (300), 300, (300) g
Titicaca eða Alpaca 1: 100, (100), 100, (100), 150, (150), 150, (150) g