Skip to product information
1 of 6

Kvika V hálsmáls lokuð

Kvika V hálsmáls lokuð

Regular price 1,100 ISK
Regular price Sale price 1,100 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Kvika er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er heilmunstruð. Byrjað er að prjóna fram og til baka þar til hálsmálið hefur myndast, þá er tengt saman og byrjað að prjóna í hring. Stroffið í hálsmálinu er prjónað eftir á. Mismunandi prjónfesta er á stærðum, það er til þess að stökkið á milli stærða sé ekki jafn stórt. Þannig eru stærðir XS, M, XL, 3XL  og 5XL með prjónfestu 16/10 á 5.5 mm prjóna og stærðir S, L, 2XL, 4XL og 6 XL með prjónfestu 15/10 á 6 mm prjóna, hérna þurfa samt sumir að nota fínni eða breiðari prjóna til þess að ná réttri prjónfestu.

Athugið að stærðir 5XL og 6XL hafa ekki verið prufuprjónaðar.

Stærðir: Xsmall, (Small), Medium, (Large), XLarge, (2XL), 3XL, (4XL), 5XL, (6XL).
Yfirvídd: 90, (96), 105, (112), 120, (128), 135, (144), 151, (160) cm.
Prjónfesta: 16/10 á 5.5 mm. prjóna og 15/10 á 6 mm prjóna

Prjónar: Sokkaprjónar 5 mm og 6 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm, 5 mm, 5.5 mm og 6 mm. Langur hringprjónn (60/80 cm) 5 mm, 5.5 mm og 6 mm.

Garntillögur: Knitting for Olive Merino og Knitting for Olive mohair eða Pascuali Alpaca Fino og Pascuali Alpaca Lace.

Garnmagn: KFO Merino: 150, (150), 200, (200), 200, (250), 250, (300), 300, (300)g.

                     KFO Mohair: 100, (100), 125, (125), 125, (150), 150, (150), 175, (175)g.

                     Pascuali Alpaca Fino: 400, (400), 450, (450), 500, (550), 550, (600), 600, (650) g.

                     Pascuali Alpaca Lace: 100, (100), 150, (150), 150, (150), 150, (150), 200, (200) g.

View full details