Skip to product information
1 of 8

Kvika opin peysa

Kvika opin peysa

Regular price 1,100 ISK
Regular price Sale price 1,100 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Kvika er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er prjónuð fram og til baka, slétt á réttu og brugðið á röngu. Peysan er heilmunstruð. Hnappalistinn er prjónaður eftir á með tvöföldu prjóni eða þá að hann er prjónaður með sléttum og brugðnum lykkjum, eftir smekk.

Mismunandi prjónfesta er á stærðum, það er til þess að stökkið á milli stærða sé ekki jafn stórt. Þannig eru stærðir XS, M, XL, 3XL  og 5XL með prjónfestu 16/10 á 5.5 mm prjóna og stærðir S, L, 2XL, 4XL og 6 XL með prjónfestu 15/10 á 6 mm prjóna, hérna þurfa samt sumir að nota fínni eða breiðari prjóna til þess að ná réttri prjónfestu. 

Ath. Stærðir 5XL og 6XL hafa ekki verið prufuprjónaðar.

Stærðir: Xsmall, (Small), Medium, (Large), XLarge, (2XL), 3XL, (4XL), 5XL, (6XL).
Yfirvídd: 91, (97), 106, (112), 124, (133), 141, (150), 157, (167) cm.
Prjónfesta: 16/10 á 5.5 mm. prjóna og 15/10 á 6 mm prjóna

Prjónar: Sokkaprjónar 5 mm og 6 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm, 5 mm, 5.5 mm og 6 mm. Langur hringprjónn (60/80 cm) 5 mm, 5.5 mm og 6 mm. (Breytilegt milli stærða)

Garntillögur: Rico Esssentials Colourlove eða BC garn Brisa.

Garnmagn: Rico E C: 300, (300), 300, (300), 400, (400), 400, (400), 500, (500)g.

                    BC garn Brisa: 300, (350), 400, (450), 500, (550), 600, (600), 650, (650)g.

View full details