Kvika klútur
Kvika klútur
Couldn't load pickup availability
Klúturinn er prjónaður frá enda út að enda. Uppskriftin er þannig uppbyggð að prjónfestan er ekki mikilvæg, ef fínna garn er valið þá verður klúturinn bara fíngerðari en ef grófara garn er valið þá verður hann grófari, lagið heldur sér alltaf. Þannig getur maður valið hversu grófur/fínn hann á að vera. Einnig getur maður líka stjórnað laginu á klútnum, miðju kaflann er hægt að lengja með því að hætta að auka út og þá kemur bara jafn breiður kafli.
Það er jafnvel hægt að gera hálsklút úr því, ef maður velur garn sem er fyrir ca 3 mm prjóna, eins og „fingering“ garn
Stærðir: 1 stærð
Prjónfesta: Fer bara eftir garninu sem þið ákveðið að nota
Prjónar: Prjónar sem henta garninu sem er valið, ef garnið er gefið upp fyrir 4 mm, þá myndi ég nota prjón sem er 0,5 – 1 mm breiðari.
Garntillögur: Lang Vaya og Garn í gangi Suri Alpaca, Vatnsnesyarn Merino DK, Systrabönd handlitun DK garn eða Pascuali Alpaca Fino.
Garnmagn: Alpaca Fino: 200 g (fer eftir því hversu stórt það á að vera)
Lang Vaya: 100 g
Suri Alpaca: 50 g
Vatnsnes eða Systrabönd: 200 g
Share
