Kvika fyrir fullorðna
Kvika fyrir fullorðna
Couldn't load pickup availability
Kvika er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er heilmunstruð, þó er hægt ef vill að hafa bara munstur á berustykki og slétt prjón annars staðar. Mismunandi prjónfesta er á stærðum, það er til þess að stökkið á milli stærða sé ekki jafn stórt. Þannig eru stærðir XS, M, XL, 3XL og 5XL með prjónfestu 16/10 á 5.5 mm prjóna og stærðir S, L, 2XL, 4XL og 6 XL með prjónfestu 15/10 á 6 mm prjóna, hérna þurfa samt sumir að nota fínni eða breiðari prjóna til þess að ná réttri prjónfestu.
Uppgefið garnmagn er miðað við um það bil hálferma peysu/bol.
Stærðir 5XL og 6XL hafa ekki verið prufuprjónaðar, gott að hafa það í huga ef þið ákveðið að prjóna þær stærðir. Ákvað að hafa þær samt með, þar sem allir útreikningar ættu að stemma <3
Stærðir: Xsmall, (Small), Medium, (Large), XLarge, (2XL), 3XL, (4XL), 5XL, (6XL).
Yfirvídd: 90, (96), 105, (112), 120, (128), 135, (144), 151, (160) cm.
Prjónfesta: 16/10 á 5.5 mm. prjóna og 15/10 á 6 mm prjóna
Prjónar: Sokkaprjónar 5 mm og 6 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 5 mm, 5.5 mm og 6 mm. Langur hringprjónn (60/80 cm) 5 mm, 5.5 mm og 6 mm.
Garntillögur: Isager Bomulin og Knitting for Olive Pure Silk eða Pascuali Linen Bloom og BC garn Jaipur Silki.
Garnmagn: Bomulin/Linen Bloom: 200, (200), 200, (250), 250, (300), 300, (300), 350, (350)g.
Silki: 150, (150), 150, (150), 200, (200), 200, (250), 250, (250)g.
Share
