Skip to product information
1 of 7

Kvika barnapeysa

Kvika barnapeysa

Regular price 1,100 ISK
Regular price Sale price 1,100 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Kvika er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er heilmunstruð. Sniðið á peysunni á að vera laust en ekki í yfirstærð. Mismunandi prjónfesta er á stærðum, það er til þess að stökkið á milli stærða sé ekki jafn stórt. Þannig eru stærðir 1 – 2 ára, 4 – 5 ára og 12 – 14 ára með prjónfestu 18/10 á 4.5 mm prjóna og stærðir 2 - 3 ára og 6 - 7 ára með prjónfestu 17/10 á 5 mm prjóna, að lokum er svo stærð 8 – 10 ára með prjónfestu 16/10 á 5.5 mm.  

Stærðir: 1 – 2 ára, (2 – 3 ára), 4 - 5 ára, (6 – 7 ára), 8 - 10 ára, (12 - 14 ára).

Yfirvídd: 66, (71), 80, (85), 90, (93) cm.

Prjónfesta: 18/10 á 4.5 mm. prjóna, 17/10 á 5 mm prjóna eða 16/10 á 5.5 mm

Prjónar: Sokkaprjónar 4, 4.5, 5 og 5.5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4, 4.5, 5 og 5.5 mm. Langur hringprjónn (60/80 cm) 4, 4.5, 5 og 5.5 mm (Fer eftir stærðum).

Garntillögur: Knitting for Olive Heavy Merino, Filcolana Peruvian eða Pascuali Alpaca Fino.

Garnmagn: 200, (250), 300, (300), 350, (400) g.

View full details