Jökull peysa
Jökull peysa
Couldn't load pickup availability
Peysan Jökull er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Munstur nær yfir allt berustykkið, niður á bolinn og niður á ermar. Sniðið á peysunni er mjög laust (oversize). Ef maður vill hafa peysuna enn meira oversize, þá er hægt að fara upp um 0.5 mm í prjónastærð og þá verður prjónfestan um það bil 17/10 á 5.5 mm.
Peysan er hönnuð í samstarfi við Ásu Steinars og það er ekki heimilt að selja tilbúnar peysur sem hafa verið prjónaðar eftir þessari uppskrift.
Stærðir: Xsmall, (Small), Medium, (Large), XLarge, (2XLarge), 3Xlarge.
Yfirvídd: 100, (111), 122, (133), 144, (155), 166 cm.
Prjónfesta: 18/10 á 5 mm. prjóna
Prjónar: Stuttur hringprjónn (40 cm) 4 mm, 4.5 mm og 5 mm.
Langur hringprjónn (60/80 cm) 4/4,5 mm og 5 mm.
Garntillögur: Filcolana Peruvian, Pascuali Alpaca Fino eða Ístex Léttlopi.
Garnmagn fyrir aðallit: 450, (500), 550, (600), 600, (650), 700 g
Garnmagn fyrir munstur: Garnmagn í munsturlitum er í stærðum xs – s er um það bil 150 gr en í stærri stærðum um það bil 150 - 200 gr.
Share
