Jökla fullorðins
Jökla fullorðins
Jökla er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er öll prjónuð slétt, nema á stroffum. Þegar valin er stærð til þess að prjóna, þá er best að velja stærð eftir að búið er að mæla þann sem prjónað er á og velja stærð út frá þeim málum. Mál á ermum og bol eru gefin upp í kvennastærðum, en auðvelt er að lengja ermar og bol eftir því á hvern er prjónað. Ermalengd og bollengd getur verið mjög mismunandi á milli einstaklinga.
Jökla er einföld peysa sem hentar sérstaklega vel fyrir byrjendur sem lengra komna :)
Stærðir: XSmall, (Small), Medium, (Large), XLarge, (2XL), 3XL, (4XL), 5XL.
Yfirvídd: 99, (105), 110, (116), 122, (129), 137, (146), 154 cm.
Prjónfesta: 17/10 á 5 mm. prjóna.
Prjónar: Sokkaprjónar 4.5 mm og 5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm og 5 mm. Langur hringprjónn (80 cm) 4.5 mm 5 mm.
Garntillögur: Kelbourne Woolens Scout + Isager Alpaca 1, Filcolana Pernilla + Holst Titicaca, Dottir Dyeworks Highland Worsted eða Lana Gatto Feeling + Systrabönd alpaca/silki.
Garnmagn: Scout: 400, (400), 400, (500), 600, (600), 700, 700 g
Isager Alpaca/Holst Titicaca: 100, (100), 150, (150), 150, (150), 200, (200), 200 g
Filcolana Pernilla: 300, (300), 350, (350), 350, (400), 450, (450), 450 g
Dottir Dyeworks Worsted: 400, (400), 500, (500), 600, (600), 600, (700), 700 g
Lana Gatto Feeling: 300, (350), 350, (400), 400, (450), 450, (500), 500 g
Systrabönd alpaca þráður: 200, (200), 200, (200), 200, (300), 300, (300), 300 g