Heiðbjört opin fullorðinspeysa
Heiðbjört opin fullorðinspeysa
Heiðbjört er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er prjónuð fram og til baka, slétt á réttu og brugðið á röngu. Það eru kaðlar meðfram hnappalistum, í löskunum og niður ermarnar. Sniðið á peysunni á að vera frekar laust
Stærðir: Xsmall, (Small), Medium, (Large), XL, (2XL), 3XL, (4XL), 5XL
Yfirvídd: 97, (105), 110, (117), 122, (130), 137, (144), 152 cm.
Prjónfesta: 16/10 á 6 mm. prjóna
Prjónar: Sokkaprjónar 5 mm og 6 mm, langir hringprjónar 5 mm og 6 mm.
Garntillögur: Kelbourne Woolens Scout + Isager Alpaca 2, Filcolana Peruvian Highland wool + Holst Titicaca, Dottir Dyeworks Worsted Merino eða Dottir Dyeworks Worsted Higland wool.
Garnmagn:
Scout: 300, (300), 400, (400), 500, (500), 500, (600), 600 g
Alpaca 2: 150, (150), 200, (200), 250, (250), 250, (300), 300 g
Peruvian: 400, (400), 450, (500), 550, (550), 550, (600), 600 g
Titicaca: 100, (100), 150, (150), 150, (150), 150, (200), 200 g
Dottir Dyeworks: 400, (500), 500, (500), 600, (600), 600, (700), 700 g