Skip to product information
1 of 5

Gróf Flóra barnapeysa

Gróf Flóra barnapeysa

Regular price 1.100 ISK
Regular price Sale price 1.100 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Grófa Flóran er grófari útgáfa af Flóru barnapeysunni. Hún er prjónuð ofan frá og niður með köðlum á berustykkinu en annars slétt. Hún er ansi fljótprjónuð enda prjónuð á 6 mm prjóna. 

Stærðir: 6 – 12 m., (1 – 2 ára), 2 – 3 ára, (3 – 4 ára), 5 ára, (6 ára), 8 ára – 10 ára, (12 - 14 ára).

Yfirvídd: 57, (61), 65, (70), 75, (80), 87, (93) cm.

Prjónfesta: 15/10 á 6 mm. prjóna

Prjónar: Sokkaprjónar 5 mm og 6 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 5 mm og 6 mm. Langur hringprjónn (60 cm) 5 mm og 6 mm. Kaðlaprjónn.

Garntillögur: Dottir dyeworks Worsted Merino, Filcolana Peruvian + Holst Titicaca eða Kelbourne Woolens Scout + Isager Alpaca 1.

Garnmagn:      

Dottir Dyeworks Worsted Merino: 200, (200), 200, (300), 300, (400), 400, (500) g

Filcolana Peruvian: 200, (250), 250, (250), 300, (300), 350, (400) g

Titicaca eða Alpaca 1: 50, (100), 100, (100), 100, (100), 150, (150) g

Kelbourne Woolens Scout: 200, (200), 200, (300), 300, (300), 400, (400) g

View full details