1
/
of
4
Flóra opin peysa
Flóra opin peysa
Regular price
1.100 ISK
Regular price
Sale price
1.100 ISK
Unit price
/
per
Tax included.
Couldn't load pickup availability
Flóra er prjónuð ofan frá og niður, hún er prjónuð fram og til baka. Peysan er með köðlum á berustykkinu, en annars prjónuð slétt. Þegar valin er stærð til þess að prjóna, þá er best að velja stærð eftir að búið er að mæla þann sem fær peysuna og velja stærð út frá þeim málum. Sniðið á peysunni er þannig að það er auðvelt að lengja bol og ermar í þeirri yfirvídd sem manni líst á.
Stærðir: Xsmall, (Small), Medium, (Large), XLarge, (2XLarge), 3XLarge, (4XLarge), 5xlarge.
Ummál: 95, (103), 111, (118), 123, (132), 140, (145), 153 cm.
Prjónfesta: 18/10 cm á 5 mm prjóna.
Prjónar: Sokkaprjónar 4/4.5 mm og 5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4/4.5 mm og 5 mm.
Langur hringprjónn (60 cm) 4/4.5 mm og 5 mm.
Garn: Kaos Organic Soft Merino (2 þræðir), Kremke Merry merino 110 eða Filcolana Peruvian Highland wool.
Garnmagn: Filcolana og Kremke: 450, (500), 550, (600), 650, (650), 700, (700) g.
Kaos: 400, (450), 500, (500), 550, (550), 600, (600), 650 g.
Share



