Flóra barnavettlingar
Flóra barnavettlingar
Regular price
750 ISK
Regular price
Sale price
750 ISK
Unit price
/
per
Sniðið á vettlingunum er þannig að það er ekki klassískur þumall, heldur hliðarþumall. Í minnstu stærðinni er ekki gert ráð fyrir þumli, heldur er vettlingurinn prjónaður eins og ungbarnavettlingur með engum þumli. Aukið út fyrir þumlinum í annarri hverri umferð. Úrtakan efst á vettlingnum er einhvers konar hring úrtaka, en ekki þessi venjulega í hliðunum. Munstrið er kaðlamunstur og lærist fljótt. Það er aðeins öðruvísi en klassískt kaðlamunstur er ætti að vera nokkuð einfalt í framkvæmd.
Stærðir: 6 - 12 mánaða, (1 - 2 ára), 3 – 4 ára, (5 – 7 ára), 8 – 10 ára, (12 – 14 ára).
Prjónfesta: 22/10 cm á prjóna númer 4.
Prjónar: Sokkaprjónar 3.5 mm og 4 mm.
Garn: Dale Lerke, Kind Merino eða Lang Merino 120.
Garnmagn: 50, (50), 50, (50), (100), 100g