Skip to product information
1 of 9

Elsa sparipeysa

Elsa sparipeysa

Regular price 1.100 ISK
Regular price Sale price 1.100 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Elsa sparispeysa er nefnd eftir mömmu minni sem hefur verið mín stoð og stytta frá því ég byrjaði að skrifa uppskriftir. Bráðlega kemur svo önnur uppskrift sem kallast Elsa sparijakki <3

Elsa er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er öll prjónuð slétt, með munstri í útaukningum á löskum. Þegar valin er stærð til þess að prjóna, þá er best að velja stærð eftir að búið er að mæla þann sem prjónað er á og velja stærð út frá þeim málum. Mál á ermum og bol eru gefin upp, en auðvelt er að lengja ermar og bol eftir því á hvern er prjónað. Ermalengd og bollengd getur verið mjög mismunandi á milli einstaklinga. Miðað er við að ermarnar séu um það bil ¾ í lengd.

Stærðir: XSmall, (Small), Medium, (Large), XL, (2XL), 3XL, (4XL), 5XL.
Yfirvídd: 98, (104), 110, (117), 122, (127), 135, (142), 151 cm.
Prjónfesta: 18/10 á 5 mm. prjóna.

Prjónar: Stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm og 5 mm. Langur hringprjónn (80 cm) 4.5 mm 5 mm.

Garntillögur: Mohair edition Recy + Lang Paillettes, Pascuali Pinta (tvöfalt), Dottir Dyeworks Dk Deluxe.

Garnmagn: Mohair Edition Recy: 250, (250), 300, (300), 300, (350), 350, (400), 400 g

 Lang Paillettes: 150, (175), 200, (200), 250, (300), 300, (350), 350 g

 Pascuali Pinta: 350, (400), 400, (450), 450, (500), 500, (550), 550 g

 Dottir Dyeworks Dk Deluxe: 300, (400), 400, (400), 400, (500), 500, (500), 500 g

View full details