Skip to product information
1 of 5

Heiðbjört Herðaslá

Heiðbjört Herðaslá

Regular price 750 ISK
Regular price Sale price 750 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Áður en hafist er handa við að prjóna herðaslánna, þá er mjög skynsamlegt að lesa yfir uppskriftina einu sinni í það minnsta. Það er pínu erfitt að gefa upp ákveðið magn af garni í slánna, þar sem það fer pínu eftir prjónaranum hversu langa maður vill hafa slánna. Heiðbjört er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Sláin er með kaðlamunstri, sem fer svo niður alla slánna, en annars prjónuð slétt. Hægt er að hafa slánna ferkantaða eða hringlaga, ef hún er ferköntuð, þá fer mögulega meira garn í hana, því hún verður aðeins síðari. Varðandi prjónfestuna, þá er mjög skynsamlegt að prófa garnið sem maður ákveður að nota í flíkina í litla prufu og sjá hvort prjónfestan passi.

Stærðir: Ein stærð

Prjónfesta: 15/10 á 6 mm. prjóna.

Prjónar: Stuttur hringprjónn (40 cm) 4 eða 5 mm. Langur hringprjónn (60 cm) 6 mm. Kaðlaprjónn

Garntillögur: Vatnsnes yarn fingering + Vatnsnes yarn Suri Fluff fingering, Edy Angola Alpaca Merino

Garnmagn: Vatnsnes Fingering: 200 g

                     Vatnsnes Suri Fluff: 200 g

                     Edy Angola Alpaca Merino: 250 - 300g

View full details