Biðukolla barnapeysa (opin)
Biðukolla barnapeysa (opin)
Opin Biðukolla er prjónuð fram og til baka ofan frá. Peysan er heilmunstruð og ætti að vera á flestra færi að prjóna hana.
Stærðir: 6 mán - 1 árs, (1 - 2 ára), 2 - 3 ára, (4 – 5 ára), 6 ára – 8 ára, (10 - 12 ára), 14 ára.
Yfirvídd: 61, (68), 72, (79), 84, (90), 93 cm.
Prjónfesta: 18/10 á 5 mm. prjóna og 17/10 á 5.5 mm prjóna
Prjónar: Sokkaprjónar 4.5 mm, 5 mm og 5.5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm, 5 mm og 5.5 mm. Langur hringprjónn (60 cm) 4.5 mm 5 mm og 5.5 mm.
Garntillögur: Krea Deluxe organic wool 1 + Holst Coast (saman) eða Lana Gatto Feeling + Holst Coast (saman) eða Kremke Merry merino 110.
Garnmagn Kremke Merry Merino 110: 150, (200), 250, (300), 300, (350), 400 g
Krea eða Lana Gatto: 100, (150), 200, (250), 250, (300), 300 g
Holst Coast: 50, (100), 100, (100), 150, (150), 150 g