Skip to product information
1 of 4

Aðventa jólapeysa

Aðventa jólapeysa

Regular price 1.100 ISK
Regular price Sale price 1.100 ISK
Sale Sold out
Tax included.

ATH! 50% af söluágóða peysunnar fara til styrktar Mæðrastyrksnefndar, Dropans félag fyrir börn með sykursýki T1 og Umhyggju sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldum þeirra, frá 15. nóv - 15. des 2024. 

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Tvíbanda munstur er á berustykkinu en annars er hún prjónuð slétt alls staðar nema stroffin. Sniðið á peysunni er frekar laust. Þessi peysa er ekki flókin í framkvæmd og ætti að vera á flestra færi. 

Stærðir: XXs, (Xs), Small, (Medium), Large, (XL), 2XL, (3XL), 4XL, (5XL).
Yfirvídd: 92, (98), 105, (111), 117, (122), 129, (139), 150, (160)  cm.
Prjónfesta: 18/10 á 5 mm. prjóna

Prjónar: Sokkaprjónar 4.5 mm og 5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm og 5 mm.
Langur hringprjónn (60/80 cm) 4.5 mm og 5 mm. 
Garntillögur: Systrabönd Handlitun Fingering + Holst Tides, Kremke Merry Merino 110.  
Garn í munstur: Filcolana Paia með fylgiþræði, td. Holst Tides/Holst Coast/Holst Supersoft

Garnmagn: Systrabönd: 200, (200), 300, (300), 300, (300), 400, (400), 400, (500)Holst Tides: 150, (200), 200, (250), 250, (300), 300, (350), 350, (350) g

 Kremke Merry M: 400, (400), 450, (450), 500, (550), 600, (650), 650, (700) g

Munsturlitir: Undir 50 gr í hverjum lit. 

View full details