Skip to product information
1 of 5

Tildra V neck opin peysa

Tildra V neck opin peysa

Regular price 1.100 ISK
Regular price Sale price 1.100 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Tildra er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er heilmunstruð. Peysan er opin og er prjónuð fram og til baka. Hnappalistar eru prjónaðir eftir á með tvöföldu prjóni. Bil á milli stærða er nokkuð langt. Ef manni langar í stærð á milli, þá er hægt að prjóna peysuna á 4.5 mm prjóna og ná prjónfestunni 18/10 á 4.5 mm og þá minnkar hver stærð um 4 – 5 cm í yfirvídd, eða prjóna hana á 5.5 mm prjón og þá verður prjónfestan 16/10. Allar stærðirnar eru prjónaðar á 5 mm, nema sú stærsta hún er prjónuð á 5.5 mm prjóna. 

Gott er að hafa í huga að Tildra er ekki einföld peysa og maður þarf að hafa að minnsta kosti miðlungs kunnáttu í prjóni til að prjóna hana <3

Stærðir: XS - S, (M - L), XL – 2XL, (3XL), 4XLarge, (5XLarge).
Yfirvídd: 100, (116), 128, (140), 149, (160) cm.
Prjónfesta: 17/10 á 5 mm. prjóna

Prjónar:  Sokkaprjónar 4.5 mm og 5 mm, langur hringprjónn 4 mm, 4.5 mm, 5 mm

Garntillögur: Knitting for Olive heavy Merino eða Pascuali Alpaca Fino eða Dottir Dyeworks Organic Merino DK eða Cascade 220

Garnmagn: 400, (500), 500, (600), 600, (700) g

View full details