Skip to product information
1 of 6

Tildra Chunky Lokuð

Tildra Chunky Lokuð

Regular price 1.100 ISK
Regular price Sale price 1.100 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Tildra er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er heilmunstruð. Af því stökkið á milli stærða getur verið ansi langt, þá stemmir munstrið í sumum stærðum og öðrum ekki, það er að segja að í nokkrum stærðum þá eru auka lykkjur undir handvegi sem eru prjónaðar sem slétt og brugðið en ekki í munstrinu.

Þær stærðir sem munstrið gengur upp í eru XS, M, 2XL og 4XL. Það er líka hægt að stækka stærðir á annan hátt, eins og með því að fara upp á 9 mm prjóna og ná prjónfestunni 11/10 og þá eruð þið komin upp um 1 stærð. Í uppskriftinni er þó miðað við að allar stærðir séu prjónaðar á 8 mm prjóna.

Tildra er ótrúlega fljótprjónuð og skemmtileg peysa :)

Stærðir: Xsmall, (Small), Medium, (Large/XLarge), 2XL, (3XL), 4XL, (5XL)
Yfirvídd: 99, (107), 116, (123), 133, (140), 150, (157) cm.
Prjónfesta: 12/10 á 8 mm. prjóna

Prjónar: Sokkaprjónar 7 mm og 8 mm, langur hringprjónn 6 mm, 7 mm og 8 mm.  

Garntillögur: Dottir Dyeworks Worsted Highland og Holst Tides eða tvöfaldur þráður BC Shetland wool og Isager alpaca 2

Garnmagn: Dottir Dyeworks Worsted Highland: 300, (300), 400, (400), 400, (500), 500, (500) g

Holst Tides: 150, (150), 150, (150), 150, (200), 200, (200) g 

BC Shetland: 200, (250), 250, (300), 300, (350), 350, (400) g

Isager Alpaca 2: 150, (150), 150, (150), 200, (200), 200, (200) g

View full details