Tildra lokuð barnapeysa
Tildra lokuð barnapeysa
Tildra er prjónuð ofan frá og niður. Peysan er lokuð og heilmunstruð. Mismunandi prjónfesta er á stærðum, það er til þess að stökkið á milli stærða sé ekki jafn stórt. Það er komin uppfærsla á þessari peysu þar sem munstrið er aðeins öðruvísi en báðar útgáfur eru fallegar og bara smekksatriði hvora maður vill :)
Stærðir: 6–12mánaða,(1–2ára),2–3ára,(4–5ára),6ára,(8–10ára),12ára.
Ummál: 59, (63), 70, (75), 82, (88), 94 cm.
Prjónfesta: 17/10 á 4,5/5 mm. og 16/10 á 5/5.5 mm prjóna
Prjónar: Sokkaprjónar 4, 4.5, 5 og 5.5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4, 4.5, 5 og 5,5 mm og 5.5 mm. Langur hringprjónn (80 cm) 4, 4.5, 5 og 5.5 mm.
Garn: Merino Kindknitting eða Dale Merino 22 og fylgiþráður Holst Titicaca eða Filcolana Alva.
Garnmagn: Kind Merino eða Merino 22: 100, (150), 200, (250), 250, (300), 350 g.
Holst Titicaca eða Filcolana Alva: 50, (100), 100, (100), 125, (125), 150 g.