Tíbrá ungbarnavettlingar
Tíbrá ungbarnavettlingar
Regular price
750 ISK
Regular price
Sale price
750 ISK
Unit price
/
per
Í öllum stærðum nema þeirri stærstu er ekki þumall, sniðið á vettlingunum er þannig að það er ekki klassískur þumall, heldur hliðarþumall. Aukið út fyrir þumlinum í þriðju hverri umferð. Það er auðvitað hægt að bæta þumlinum við í minni vettlingum ef maður vill. Úrtakan efst á vettlingnum er einhvers konar hring úrtaka, en ekki þessi venjulega í hliðunum.
Stærðir: 0 - 3 mánaða, (3 – 6 mánaða), 6 – 9 mánaða, (9 – 12 mánaða), 12 – 18 mánaða
Prjónfesta: 28/10 á 3 mm. prjóna
Prjónar: Sokkaprjónar 2.5 mm og 3 mm.
Garntillögur: Lang Merino 200, Kremke Merry merino 220 eða Lana Gatto Mini Soft garn
Garnmagn: 50 g í allar stærðir