Svanur ungbarnalambhúsetta
Svanur ungbarnalambhúsetta
Couldn't load pickup availability
Lambhúshettan er prjónuð með stuttum umferðum á enninu og úrtökum aftan á. Stroff í hálsinn og munstrið á berustykkinu er hið svokallaða Svansmunstur. Fellt er af með I-cord affellingu. Uppgefið garn er með mjög svipuðum metrafjölda á hverri dokku og ætti því ekki að skipta máli hvaða garn er valið þegar lambhúshettan er prjónuð. Prjónfestan sem er gefin upp, er 27-28/10 á 3 mm prjóna, ég mæli alltaf með því að gera prjónfestuprufu til þess að ná réttri stærð á húfuna.
Stærðir: 0 – 3 mánaða (3 – 6 mánaða), 6 – 12 mánaða, (12 – 18 mánaða)
Prjónfesta: 27-2 8/10 á 3 mm. prjóna
Prjónar: stuttur hringprjónn (40 cm og mögulega 60 cm) 2.5 mm og 3 mm.
Garntillögur: Knitting for Olive Merino eða Kremke Merry Merino 220
Garnmagn: 50, (50), 100, (100)
Share
