Svanur gróf barnapeysa
Svanur gróf barnapeysa
Grófa útgáfan af vinsælu barnapeysunni Svanur, prjónuð á 6 mm prjóna, sem þýðir að hún er ótrúlega fljótprjónuð. Peysan er prjónuð ofan frá og niður með munstri á berustykkinu.
Stærðir: 6 – 12 m., (1 – 2 ára), 2 – 3 ára, (3 – 4 ára), 5 ára, (6 ára), 8 – 10 ára, (12 - 14 ára).
Yfirvídd: 57, (61), 65, (71), 75, (80), 87, (93) cm.
Prjónfesta: 15/10 á 6 mm. prjóna
Prjónar: Sokkaprjónar 5 mm og 6 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 5 mm og 6 mm.
Langur hringprjónn (60 cm) 5 mm og 6 mm.
Garntillögur: Dottir dyeworks Worsted Merino, Lang Merino 120 + Holst Coast eða Kelbourne Woolens Scout + Isager Alpaca 1.
Garnmagn:
Dottir Dyeworks Worsted Merino: 200, (200), 200, (300), 300, (400), 400, (500) g
Lang Merino 120: 200, (200), 250, (250), 250, (300), 300, (350) g
Holst Coast eða Alpaca 1: 100, (100), 100, (100), 100, (100), 150, (150) g
Kelbourne Woolens Scout: 200, (200), 200, (300), 300, (300), 400, (400) g