Svanur fullorðinspeysa
Svanur fullorðinspeysa
Regular price
1.100 ISK
Regular price
Sale price
1.100 ISK
Unit price
/
per
Peysan Svanur er prjónuð að ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Munsturbekkur nær yfir berustykkið en annars er hún prjónuð slétt alls staðar
nema stroffin. Sniðið á peysunni á að vera laust en ekki í yfirstærð. Prjónuð er upphækkun í hálsmálið að aftan.
Stærðir: xsmall, (small), medium, (large), xlarge, (xxlarge).
Ummál: 98, (103), 111, (116), 122, (127)
Prjónfesta: 18/10 cm á prjóna númer 5.
Prjónar: Sokkaprjónar 4.5 mm og 5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm og 5 mm, langur hringprjónn (80 cm) bæði 4.5 mm og 5 mm.
Garn: Úlfur frá Kindknitting eða Filcolana Peruvian Highland Wool.
Garnmagn: 450, (500), 550, (600), 650, (650) g.