Svanur Chunky fullorðins
Svanur Chunky fullorðins
Svanur chunky er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Munsturbekkur nær yfir berustykkið en annars er hún prjónuð slétt alls staðar
nema stroffin. Sniðið á peysunni á að vera laust en ekki í yfirstærð. Prjónuð er upphækkun í hálsmálið að aftan.
Stærðir: xsmall, (small), medium, (large), xlarge, (xxlarge).
Ummál: 98, (104), 108, (115), 123, (130), 140.
Prjónfesta: 13/10 cm á prjóna númer 7.
Prjónar: Sokkaprjónar 6 mm og 7 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 6 mm og 7 mm, langur hringprjónn (80 cm) bæði 6 mm og 7 mm.
Garn og garnmagn
Kindknitting Úlfur: 450, (500), 550, (600), 650, (700), 750
Álafosslopi: 700, (700), 800, (800), 900, (900), 900 g.
Holst Cielo og Holst Titicaca er notað saman
Holst Cielo: 350, (350), 400, (400), 450, (550), 550, Holst Titicaca: 100, (100), 100, (150), 150, (150), 150