Skip to product information
1 of 5

Sumarblær opin barnapeysa

Sumarblær opin barnapeysa

Regular price 1.100 ISK
Regular price Sale price 1.100 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Peysan Sumarblær er prjónuð ofan frá og niður. Peysan er prjónuð fram og til baka slétt á réttunni og brugðin á röngunni. Alveg niður að munstur bekknum sem er neðst á peysunni. Hægt er að velja um að hafa peysuna aðeins síðari að aftan eða jafna sídd á henni allri. Sniðið á peysunni á að vera laust en ekki í yfirstærð

Stærðir: 6 – 12 mánaða, (1 – 2 ára), 2 – 3 ára, (3 – 4 ára), 4 – 5 ára, (6 ára), 8 ára, (10 ára), 12 ára.

Ummál: 58, (62), 65, (69), 72, (76), 80, (84), 87 cm.

Prjónfesta: 22/10 cm á prjóna númer 4.

Prjónar: Sokkaprjónar 3.5 mm og 4 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 3.5 mm og 4 mm. Lengri hringprjónn (60 – 80 cm, fer eftir stærð) í bæði 3.5 mm og 4
mm.

Garn: Dale merino 22, Lang Merino 120 eða Dale Lerke 

Garnmagn: 200, (250), 300, (300), 350, (350), 400, (450), 500 g.

View full details