Íris Vesti
Íris Vesti
Couldn't load pickup availability
Íris vestið er prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp aftan á hálsmáli. Vestið er allt prjónað slétt, nema á stroffum. Þegar valin er stærð til þess að prjóna, þá er best að velja stærð eftir að búið er að mæla þann sem prjónað er á og velja stærð út frá þeim málum. Bollengd getur verið mjög mismunandi á milli einstaklinga. Varðandi prjónfestuna, þá er mjög skynsamlegt að prófa garnið sem maður ákveður að nota í flíkina í litla prufu og sjá hvort prjónfestan passi. Uppgefið garnmagn í vestið getur breyst ef ákveðið er að lengja bol, gott að hafa það í huga þegar keypt er garn í það.
Stærðir: XSmall, (Small), Medium, (Large), XLarge, (2XL), 3XL, (4XL)
Yfirvídd: 99, (105), 112, (117), 123, (129), 137, (144) cm.
Prjónfesta: 17/10 á 5 mm. prjóna.
Prjónar: Langur hringprjónn (80 cm) 4, 4.5 mm 5 mm.
Garntillögur: Systrabönd handlitun Merino Hör Aran, Edy Angola Alpaca Merino, Pasquali Alpaca Fino.
Garnmagn Systrabönd: 300, (300), 300, (400), 400, (400), 400, 500 g
Edy angola: 200, (200), 200, (250), 250, (250), 300, (300), 300 g
Pasquali: 300 (300), 300, (350), 350, (350), 400, (400), 400 g
Share
