Skip to product information
1 of 4

Hríma fyrir fullorðna

Hríma fyrir fullorðna

Regular price 1.100 ISK
Regular price Sale price 1.100 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Hríma er nokkuð einföld peysa, prjónuð ofan frá og niður, sem þýðir að byrjað er að fitja upp á hálsmáli. Peysan er öll prjónuð slétt, nema á stroffum. Jafnar útaukningar eru á berustykkinu. Þegar valin er stærð til þess að prjóna, þá er best að velja stærð eftir aðbúið er að mæla þann sem prjónað er á og velja stærð út frá þeim málum. Mál á ermum og bol eru gefin upp í kvennastærðum, en auðvelt er að lengja ermar og bol eftir því á hvern er prjónað.

Stærðir: XSmall, (Small), Medium, (Large), XLarge, (2XL), 3XL, (4XL), 5XL.
Yfirvídd: 99, (105), 110, (116), 122, (129), 137, (146), 154 cm.
Prjónfesta: 17/10 á 5 mm. prjóna.

Prjónar: Sokkaprjónar 4.5 mm og 5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm og 5 mm. Langur hringprjónn (80 cm) 4.5 mm 5 mm.

Garntillögur: Garn í Gangi Fluffy, Edy Angola Alpaca Merino, Pasquali Alpaca Fino, Cascade 220.

Garnmagn:

Garn í gangi Fluffy: 300, (300), 400, (400), 400, (500), 500, 500 g

Edy Angola: 300, (300), 350, (350), 400, (450), 450, 500 g

Pasquali: 400, (450), 500, (550), 600, (650), 700, (750), 800 g

Cascade 220: 400, (500), 500, (600), 600, (700), 700, (800), 800 g

View full details