Gróf Flóra barnapeysa
Gróf Flóra barnapeysa
Grófa Flóran er grófari útgáfa af Flóru barnapeysunni. Hún er prjónuð ofan frá og niður með köðlum á berustykkinu en annars slétt. Hún er ansi fljótprjónuð enda prjónuð á 6 mm prjóna.
Stærðir: 6 – 12 m., (1 – 2 ára), 2 – 3 ára, (3 – 4 ára), 5 ára, (6 ára), 8 ára – 10 ára, (12 - 14 ára).
Yfirvídd: 57, (61), 65, (70), 75, (80), 87, (93) cm.
Prjónfesta: 15/10 á 6 mm. prjóna
Prjónar: Sokkaprjónar 5 mm og 6 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 5 mm og 6 mm. Langur hringprjónn (60 cm) 5 mm og 6 mm. Kaðlaprjónn.
Garntillögur: Dottir dyeworks Worsted Merino, Filcolana Peruvian + Holst Titicaca eða Kelbourne Woolens Scout + Isager Alpaca 1.
Garnmagn:
Dottir Dyeworks Worsted Merino: 200, (200), 200, (300), 300, (400), 400, (500) g
Filcolana Peruvian: 200, (250), 250, (250), 300, (300), 350, (400) g
Titicaca eða Alpaca 1: 50, (100), 100, (100), 100, (100), 150, (150) g
Kelbourne Woolens Scout: 200, (200), 200, (300), 300, (300), 400, (400) g