Flóra ungbarnasett
Flóra ungbarnasett
Flóra ungbarnasett samanstendur af Peysu, buxum, húfu og vettlingum. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, sama með buxur. Húfan er með klassísku hjálmhúfu sniði og vettlingarnir eru með hringúrtöku.
Stærðir: 0 – 3 mánaða, (3 – 6 mánaða), 6 – 9 mánaða, (9 – 12 mánaða), 12 – 18 mánaða
Prjónfesta: 28/10 á 3 mm. prjóna
Prjónar: Sokkaprjónar 2.5 mm og 3 mm. Langur og stuttur hringprjónn (80 cm) 2.5 mm og 3 mm. Kaðlaprjónn.
Garntillögur: Krea Deluxe organic wool 1, Kaos Organic Soft Merino eða Kelbourne woolens Camper.
Garnmagn í peysu: Krea Deluxe: 150, (150), 200, (200), 250 g
Kaos Organic soft Merino: 100, (100), 100, (150), 150 g
Kelbourne woolens Camper: 100, (150), 150, (200), 200 g
Garnmagn í buxur: 100, (100), 150, (150), 200 g
Garnmagn í húfu: 50 g í allar stærðir
Garnmagn í vettlinga: 50 g í allar stærðir