Flóra dömupeysa
Flóra dömupeysa
Regular price
1.100 ISK
Regular price
Sale price
1.100 ISK
Unit price
/
per
Flóra er prjónuð ofan frá og niður. Peysan er með köðlum á berustykkinu, en annars prjónuð slétt. Þegar valin er stærð til þess að prjóna, þá er best að velja stærð eftir að búið er að mæla þann sem fær peysuna og velja stærð út frá þeim málum. Sniðið á peysunni er þannig að það er auðvelt að lengja bol og ermar í þeirri yfirvídd sem manni líst á.
Stærðir: Xsmall, (Small), Medium, (Large), XLarge, (XXLarge), XXXLarge, (XXXXLarge).
Ummál: 95, (102), 111, (117), 122, (128), 136, (143) cm.
Prjónfesta: 18/10 cm á 5 mm prjóna.
Prjónar: Sokkaprjónar 4.5 mm og 5 mm, stuttur hringprjónn (40 cm) 4.5 mm og 5 mm.
Langur hringprjónn (60 cm) 4.5 mm og 5 mm.
Garn: Dale Older, Kind Úlfur eða Filcolana Peruvian.
Garnmagn: 1450, (500), 550, (600), 650, (650), 700, (700) g.